Tetris

Ég er í Tetris! www.freetetris.org

Egla

Við unnum með greindir þar var í boði: Stærðfræðigreind, Rýmisgreind, Hreyfigreind, Samskiptagreind og fleira. Ég valdi að gera Rýmisgreind, Samskiptagreind og Hreyfigreind þið getið séð Hreyfigreindar verkefnið mitt hér á blogginu:)


Anne Frank

Ég hlustaði á söguna um Önnu Frank og gerði uppkast um ævi hennar. Upplýsingarnar sem ég fann voru helst á Wikipedia.  Svo hreinskrifaði ég uppkastið í word og eftir það prentaði ég það út og byrjaði að finna myndir á google til þess að geta unnið myndband í Movie maker. Myndirnar sem ég fann voru á Flickr.com og google. Mér fannst þetta verkefni skemtilegt en það hefði verið betra að fá meiri tíma.

 

 


Ítalía og Úkraína

Í landafræði höfum við verið að vinna með margs konar verkefni. Eitt af því var power pointverkefni um tvö lönd til þrjú lönd. Löndin áttu að vera úr Evrópu. Annað landið mátti maður velja að frátöldum Norðurlöndunum en hitt átti að vera í Austur-Evrópu. Mér gekk bara vel og gerði ég verkefni um Ítalíu og Úkraínu í power Point.

Hér að neðan sjáið þið verkefnin mín í power point en til þess að sjá þau í full screen þá ýtið þið á myndina niðri í hægra horninu.

Við lásum líka í bókinni Evrópa álfan okkar. Við lásum um Bretlandseyjar, Benelúx-löndin, Suð-Austur Evrópu, Norð-Austur Evrópu, Þýskaland, Ítalíu, Grikkland, Forn-Grikki, Spán, Portúgal, Sviss, Austurríki, Liechtenstein og nokkur smáríki. Einnig gerðum við mjög langt aukaverkefni með ýmsar upplýsingar um Evrópu, ég og Bjarni unnum saman og skrifuðum í vinnubók. Úr þessu tökum við þrjú próf í heildina.


Hallgrímur Pétursson

Í miðönn í Ölduselsskóla lærði ég um Hallgrím Pétursson í íslensku.

Við gerðum Power Point glærusýning um hann og túlkuðum ljóð í myndum eftir hann í movie maker. Nú ætla ég að segja frá Power Point verkefninu.

Ég lærði mikið um Hallgrím Pétursson eins og til dæmis hvar hann ólst upp og í hvaða skóla hann var. Áður en ég lærði um hann vissi ég mjög lítið um hann. Upplýsingarnar fékk ég á netinu.

Verkefnið vann ég þannig að ég gerði það í Power Point og átti að láta það líta út fyrir að vera gamalt. Ég átti líka að lesa inná glærurnar og setja inná slideshare.

Það sem mér fannst erfitt var að finna myndir um suma hluti eins og til dæmis um uppvaxtarárin. Mér fannst líka svolítið erfitt að tala inn á glærurnar.

 

 


Höfundur

Bjössi
Bjössi

Nemandi í Ölduselsskóla

 

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband